Lífið í dag og á morgun
Dagsetning
20. mars 2010
Ég fylgist með ....
19.01.2009 09:27:20 / kiddaemma

jájá

Úff meiri en mánuður síðan ég skrifaði síðast,  gengur ekki....

En alla vega jólin voru frábær, það var svo gott að komast í þetta frí. Kominn tími til að slaka á og það gerði ég. Það var lítið annað gert en að sofa og éta, þannig á það líka að vera um jólin.
En nú er alvaran aftur tekin við. Skólinn byrjaður á fullu og ég er í síðasta faginu mínu, hugsið ykkur, ég er í síðasta faginu mínu, ég er ekki að ná því alveg :) fer í skólann 23. jan og það er síðasta vinnuhelgin mín...  næst þegar ég fer í skólann þá verður það útskriftin mín, get ekki beðið... en það er sko nóg að gera þangað til hún er....   ég fer í síðasta prófið mitt 13. feb, síðan förum við í sumarbústað þá helgina, hlaða batteríin því amán 16. feb þá byrjar BS vinna... ég er búin að gera rannsóknaráætlun þannig þetta er allt að gerast...  :)  er smá smeyk varðandi að byrja að vinna í henni en það verður vonandi í lagi...  !! :)   hef fengið leyfi til að taka frí í vinnunni þannig nú er bara að finna aðstöðu þar sem ég get skrifað... og unnið rannsóknarvinnum, ætli ég fari ekki bara á Hlöðuna til að byrja með en væri sko alveg til í að komast í einhvern lítil sal þegar skrifin byrja sem er opinn allan sólarhringin....   en það kemur allt í ljós..

En alla vega, nóg að gera þessa dagana.....  allt komið í rútínu og það er bara fínt  :)

Skrifa athugasemd:

Það er nauðsynlegt að fylla inn í reiti merkta með *

Protected by FormShield
Vinsamlega skrifaðu inn stafina 4 sem eru á myndinni hér fyrir ofan.

Athugaðu að IP talan þín () verður skráð með færslunni.

Talning
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 257 dögum
Áætluð útskrift
Könnun

Engin könnun í gangi, athugaðu aftur seinna.
Heimsóknir
Í dag:  12  Alls: 28583
RSS tengill